Körfubolti

Jón Arnór og félagar unnu Siena

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jón Arnór skoraði sjö stig í kvöld. Lottomatica Roma mætir Siena í fimmta sinn á fimmtudagskvöld en Siena leiðir rimmuna 3-1.
Jón Arnór skoraði sjö stig í kvöld. Lottomatica Roma mætir Siena í fimmta sinn á fimmtudagskvöld en Siena leiðir rimmuna 3-1.

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma unnu nauðsynlegan sigur gegn Siena í kvöld 84-70. Siena hefði tryggt sér ítalska meistaratitilinn með sigri. Staðan í hálfleik var 39-39.

Jón Arnór skoraði sjö stig á þeim 26 mínútum sem hann lék í kvöld, þar af fimm í upphafi leiks. Liðin þurfa að mætast í fimmta sinn og fer leikurinn fram í Siena á fimmtudagskvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×