Fótbolti

Melo orðaður við Arsenal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Felipe Melo, til hægri, í leik með Fiorentina.
Felipe Melo, til hægri, í leik með Fiorentina. Nordic Photos / AFP
Felipe Melo, miðvallarleikmaður hjá ítalska úrvalsdeildarliðinu Fiorentina, segist hæstánægður með að hann sé nú orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal.

Melo er 25 ára gamall og hefur þegar spilað með sjö félögum á ferli sínum. Hann gekk til liðs við Fiorentina frá spænska liðinu Almeria nú í sumar.

Ítalskir fjölmiðlar hafa haldið því fram að Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafi áhuga á Melo. Sjálfur segir hann að umboðsmaður sinn hafi sagt sér að stórt félag hafi áhuga á að fá sig.

„Það er góð tilfinning. Hvað mig varðar finnst mér Arsenal virðulegra félag en Chelsea. En ég á fjögur ár eftir af samningi mínum og er því leikmaður Fiorentina."

„Framtíðin er í höndum almættisins. Ég þarf að einbeita mér að því að standa mig sem best."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×