Menning

Janis áfram

Janis heldur áfram eftir jól.
Janis heldur áfram eftir jól.
Rokksöngleikurinn Janis 27 eftir Ólaf Hauk Símonarson hefur verið sýndur í Íslensku óperunni við miklar vinsældir í allt haust og verður síðasta sýning haustsins næstkomandi föstudag, 28. nóvember, kl. 20. Sýningar hefjast að nýju eftir áramót og verður fyrsta sýningin þá 10. janúar, en næstu þar á eftir 23. og 31. janúar. Söngleikurinn hefur gengið frá því snemma í vetur, annar tveggja söngleikja sem Ólafur er með á sviðum Reykjavíkur, en Fólkið í blokkinni gengur enn fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsi og verður sýningum þar haldið áfram allt til jóla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×