Íslenski boltinn

Brynjar Björn meiddur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Brynjar Björn Gunnarsson.
Brynjar Björn Gunnarsson.

Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Reading, meiddist á æfingu í gær og fer í myndatöku eftir helgi.

Talið er að liðbönd séu tognuð sem þýðir að Brynjar verður væntanlega úr leik í sex til átta vikur.

Þetta þýðir að Brynjar missir að minnsta kosti af fyrstu tveimur leikjum íslenska landsliðsins í undankeppni heimsmeistaramótsins í september. Þeir eru gegn Noregi og Skotlandi.

Þetta kom fram í hádegisfréttum Stöðvar 2 í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×