Fótbolti

Riise ánægður hjá Roma

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
John Arne Riise í leik með Roma.
John Arne Riise í leik með Roma. Nordic Photos / AFP

Umboðsmaður John Arne Riise segir að norski varnarmaðurinn sé ánægður í herbúðum Roma og sé ekki á leið til Newcastle.

Joe Kinnear, stjóri Newcastle, hefur greint frá því að hann hafi áhuga á því að fá Riise að láni frá félaginu þegar að félagaskiptaglugginn opnar í janúar næstkomandi.

„John Arne er ánægður hjá Roma og ætlar að einbeita sér að samningi sínum þar," sagði umboðsmaðurinn í samtali við norska fjölmiðla.

Sjálfur sagði Riise fyrir nokkru að hann væri alls ekki á leið aftur til Englands þar sem hann lék lengi með Liverpool. „Það er bull. Ég nýt mín betur og betur hjá Roma."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×