Handbolti

Sex marka sigur dugði ekki

Elvar Geir Magnússon skrifar
Rúmenía vann sæti á HM á næsta ári.
Rúmenía vann sæti á HM á næsta ári.

Íslenska landsliðið vann Makedóníu 30-24 í Laugardalshöll í dag. Þrátt fyrir sex marka sigur komst Ísland ekki á HM þar sem Makedónar unnu fyrri leikinn á heimavelli sínum með átta marka mun.

Leikurinn í dag var ótrúlega spennandi og íslenska liðið fékk góð tækifæri til að tryggja sér sigur í einvíginu. Ísland átti frábæran seinni hálfleik en staðan í leikhléi var jöfn 13-13.

Hinsvegar tapaðist einvígið í Makedóníu

Markaskorarar Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 9, Snorri Steinn Guðjónsson 8, Ólafur Stefánsson 7, Arnór Atlason 2, Vignir Svavarsson 2, Alexander Peterson 2.

Leikurinn var í beinni textalýsingu og má lesa hana hér að neðan.

17:33 Síðasta mark leiksins kemur frá Makedóníu. Úrslit leiksins 30-24.

17:31 Spennan er ótrúleg hér í Laugardalshöll. Ólafur Stefánsson skorar úr víti. 30-23. Hálf mínúta eftir.

17:29 Makedónar skoruðu en Snorri Steinn svaraði. Tvær mínútur eftir. 29-23.

17:27 Það er leikhlé. Átta marka sigur dugar Íslandi til að komast á HM. Spennan er mikil.

17:26 Nú er stemning í Laugardalshöllinni heldur betur! Sex marka forysta Íslands 28-22. Þrjár mínútur eftir.

17:24 Rúmar 5 mínútur eftir. Staðan 25-22. Guðjón Valur er kominn með átta mörk og er markahæstur í íslenska liðinu.

17:22 Guðjón Valur skoraði tvö mörk í röð og kom Íslandi í 24-20.

17:18 Vonin veika er að hverfa, staðan 22-20 þegar tíu mínútur eru eftir. Pólsku dómararnir hafa átt marga furðulega dóma í þessum leik.

17:14 Íslenska liðið hefur átt tvö stangarskot í röð. Færi sem nauðsynlega þurfti að nýta. Makedónar refsa fyrir það og minnka muninn í þrjú mörk. 22-19.

17:12 Aukin spenna er hlaupin í þennan leik. Íslenska liðið náði góðum mörkum úr hraðaupphlaupum. Það er smá von! Fjórtán mínútur eftir.

17:09 Íslenska liðið er komið á skrið. 22-18 er staðan. Snorri Steinn orðinn markahæstur í íslenska liðinu, kominn með sex mörk.

17:05 Þegar Ísland kemst í vænlega stöðu svara Makedónarnir alltaf með því að skora tvö mörk í röð. Staðan er 19-17.

17:00 Staðan er orðin 18-15. Guðjón Valur var að skora sitt fjórða mark. Nú þarf allt að ganga upp.

16:56 Snorri skoraði með hörkuskoti í samskeytin og munurinn var orðinn tvö mörk. Makedónar minnkuðu muninn í 16-15 úr víti. Fjórar mínútur liðnar af seinni hálfleik.

16:54 Snorri Steinn Guðjónsson kemur Íslandi í 15-14. Birkir Ívar er kominn í markið í staðinn fyrir Hreiðar. Hreiðar byrjaði fyrri hálfleikinn frábærlega en missti síðan taktinn.

16:52 Fyrirliðinn Ólafur Stefánsson byrjaði seinni hálfleikinn vel og kom Íslandi yfir en gestirnir svöruðu 14-14.

16:39 Það er kominn hálfleikur í Laugardalshöllinni. Staðan jöfn 13-13. Ísland komst mest í fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik, 10-6, og þessi hálfleiksstaða því viss vonbrigði.

Markaskorarar Íslands í fyrri hálfleik: Ólafur Stefánsson 4, Snorri Steinn Guðjónsson 3 (1 víti), Guðjón Valur Sigurðsson 3, Arnór Atlason 1, Alexander Peterson 1, Vignir Svavarsson 1.

Varin skot í fyrri hálfleik: Hreiðar Guðmundsson 10.

16:36 Makedónar ná að jafna metin í 12-12, skora tvö mörk í röð.

16:34 Þrjár mínútur eftir af hálfleiknum. Ólafur Stefánsson skoraði sitt þriðja mark. 12-10.

16:30 Þrjú mörk í röð frá Makedóníu áður en Guðjón Valur náði að skora sitt þriðja mark í leiknum, 11-9.

16:29 Makedónar ná að minnka muninn í tvö mörk, 10-8. Við bendum á að haldið er utan um markaskorara íslenska liðsins hér neðst á síðunni.

16:25 Þrjú íslensk mörk í röð og fjögurra marka forysta 10-6. Þetta er allt á réttri leið.

16:21 Snorri Steinn kominn með tvö. Staðan orðin 7-6.

16:19 Ísland stendur vörnina vel og Hreiðar í miklum ham þar fyrir aftan. Markvörður Makedóníu hefur einnig átt mjög góðan leik en kom engum vörnum við þegar Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 6-4.

16:15 Ólafur Stefánsson opnar sinn markareikning með föstu skoti. 5-4.

16:13 Hreiðar Guðmundsson heldur uppteknum hætti og er kominn með sjö skot varin hér á fyrstu tólf mínútum leiksins. Staðan 4-4, Guðjón Valur komin með tvö mörk.

16:10 Íslendingar hafa náð 3-2 forystu. Alexander Peterson og Guðjón Valur Sigurðsson komnir á blað.

16:07 Hreiðar byrjar leikinn vel í markinu og er kominn með fjögur skot varin hér í byrjun leiks.

16:05 Arnór Atlason jafnaði fyrir Ísland 1-1. Arnór meiddist á æfingu í gær en komst í gegnum upphitun fyrir þennan leik og er því með.

16:03 Hreiðar Guðmundsson varði fyrsta skot leiksins frá Makedóníu. Makedónar skora hinsvegar fyrsta mark leiksins. 0-1.

16:00 Ekki er hægt að kvarta undan stemningunni í stúkunni. Leikurinn er að hefjast.

15:57 Búið er að kynna liðin til leiks og verið að leika þjóðsöngva. Fólk hópast inn í Höllina sem senn fyllist.

15:50 Dómararnir í dag eru frá Póllandi.

15:31 Það er ljóst að það er virkilega erfitt verkefni framundan hjá íslenska liðinu og nánast allt verður að ganga upp í þessum leik ef það á að komast í lokakeppni HM.

_____________________________



Markaskorarar Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 9, Snorri Steinn Guðjónsson 7, Ólafur Stefánsson 6, Arnór Atlason 2, Vignir Svavarsson 2, Alexander Peterson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×