Menning

Myndir á staurum

Verk Ellen Marie Fogstad verða til sýnis í Austurstræti á morgun. mynd Ellen Marie Fogstad
Verk Ellen Marie Fogstad verða til sýnis í Austurstræti á morgun. mynd Ellen Marie Fogstad

Ung listakona frá Noregi sem hér er sest að og sinnti störfum kynningarstjóra Norræna hússins, Ellen Marie Fogstad, efnir til óvenjulegrar ljósmyndasýningar á morgun í Austurstræti. Milli kl. 13 og 19 hengir hún myndir sínar á ljósastaura í Austurstræti. Heiti sýningarinnar er „Bláma" og er sýningin partur af verkefni um list í opnu rými.

„Ég er upptekin af list í opnu rými og þeim möguleika að setja upp sýningu þar sem ekki þarf að ganga í gegnum dyr til að nálgast verkin. Þess vegna vel ég að hengja myndirnar mínar upp á ljósastaura í miðbænum. Ég flutti til Reykjavíkur fyrir tveimur og hálfu ári.

Ljósmyndirnar sýna tilfinningu sem ég hef oft fundið fyrir eftir að ég flutti hingað," segir Ellen. Myndirnar munu einungis hanga uppi í einn dag.

Ellen Marie Fodstad er 32 ára gömul og ættuð frá Ósló. Hún stundar nú nám í hagnýtri menningarmiðlun í HÍ. Hún hefur haldið ljósmyndasafarí, stýrt listafélagi og tekið myndir fyrir ýmsa bæklinga meðfram liststörfum og vann sem kynningarstjóri í Norræna húsinu. - pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×