Körfubolti

Fyrsti leikur Yao Ming í hálft ár

AFP

Kínverski risinn Yao Ming lék í nótt sinn fyrsta leik í hálft ár þegar hann spilaði nokkrar mínútur í æfingaleik Kínverja gegn Serbum í undirbúningi fyrir Ólympíuleikana.

Miðherjinn hávaxni hefur ekki spilað síðan hann fótbrotnaði í leik með Houston Rockets í febrúar, en endurkoma hans með kínverska landsliðinu hefur eðlilega vakið mikla kátínu þar í landi.

Yao Ming er í guðatölu í Kína og var undir gríðarlegum þrýstingi frá stjórnvöldum um að koma sér í stand fyrir Ólympíuleikana þar sem Kínverjar eru gestgjafar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×