Kvennasýningar blómstra 28. nóvember 2008 04:30 Úr innsetningu hollensku listakonunnar Mathilde ter Heijne í gallerí 101 Projects milli Laugavegar og Hverfisgötu. MYND 101 Projects/ Mathilde ter Heijne
Listakonur eru fyrirferðarmiklar í myndlistarsölum þessa dagana og kennir í verkum þeirra frá liðnu ári margra grasa. Hér er líka uppi athyglisverð sýning hollenskrar listakonu þar sem bent er á hlut horfinna kvenna í myndlistinni. Sigrún Eldjárn opnaði sýningu í gær í StartArt við Laugaveg 12b og eru það kyrralífsmyndir sem hún sýnir, allar í grunninn unnar með olíu, en listakonan blandar í verkin póstkortum með vísanir í eldri verk, umslögum, pappírsblöðum og minnismiðum, svona eins og til áminningar því að „lífið snýst meðal annars um að muna og gleyma“ eins og segir í orðum listakonunnar með sýningunni. Í kynningu sinni segir Sigrún: „Á tímum hrynjandi banka og fallandi krónu er gott að staldra við frammi fyrir kyrralífsmynd. Þar eru engin læti á yfirborðinu en undir niðri geta þó leynst heilu sögurnar. Uppstillingar eða kyrralífsmyndir hafa fylgt mannkyninu um aldir, allt frá tímum Forn-Egypta til okkar daga. Þær hafa þróast á ýmsa vegu gegnum tíðina og innihald þeirra og útfærsla er fjölbreytileg.“ Sýning hennar í StartArt verður uppi til 7. janúar. Auk Sigrúnar eru fleiri listakonur með sýningar í Start Art. Leikhlé – Time out, fimmtánda einkasýning Hrafnhildar Sigurðardóttur. Á sýningunni getur að líta myndir sem hún vann í tveggja mánaða vinnustofudvöl sinni á Spáni vorið 2007 en þar vann hún eingöngu með svart blek á japanskan pappír. Eins og titill sýningarinnar gefur til kynna var þessi vinnutími á Spáni eins konar leikhlé – hlé frá hversdagslegu amstri hér heima, samþjappaður tími þar sem gefst tækifæri til endurskoðunar og jafnframt tími til að gera breytingar. Þessar breytingar felast helst í því að undanfarin ár hefur Hrafnhildur frekar unnið þrívíddarverk með þræði en málað með pensli. [spam] er heiti sýningar Sigrúnar Sigvaldadóttur, þar eru textar settir á ljósaperur. Textinn sem upprunninn er úr rusl-tölvupósti og flestir tengja áreiti, er settur í nýtt samhengi á þrívíða hluti. Sigrún Sigvaldadóttir hefur unnið sjálfstætt sem grafískur hönnuður undir nafninu „hunang • sigrún“ frá 1993. Þetta er fyrsta einkasýning Sigrúnar. Þá sýnir Lára Garðarsdóttir líka í StartArt. Húnhefur stundað nám við klassíska teikningu í The Drawing Academy í Danmörku og útskrifaðist með BA gráðu frá Character Animation frá The Animation Workshop.Á námsárunum og eftir skóla hefur Lára kynnst hinum ýmsum hliðum fagsins og unnið við hreyfimyndagerð, myndskreytingar og hönnun. Hún vinnur nú sem animator fyrir Framestore Iceland. Myndirnar á sýningunni eru veggverk unnin með blandaðri tækni. Sýningin í StartArt er fyrsta einkasýning Láru Í galleríinu 101 Projects sem Birta Guðjónsdóttir myndlistarmaður annast nú um stundir var í síðustu viku sett upp sýning á innsetningu Mathilde ter Heijne, hollenskrar listakonu. Hún er fædd 1969 í Strasbourg en býr og starfar í Berlín. Ter Heijne vinnur með ýmsa miðla en er einna þekktust fyrir innsetningar sínar og myndbandsverk. Verk Mathilde ter Heijne „Woman to go“ er nú sýnt í 101 Projects en hún hóf vinnu við það árið 2005 og er verkið í stöðugri vinnslu. Titill verksins skírskotar til stöðu kvenna í mannkynssögunni og er gestum sýningarinnar boðið að taka með sér póstkort af sýningunni, taka með sér kven-fyrirmynd, minjagrip um merkar konur, sem fallið hafa í gleymsku en hafa sett mark sitt á heiminn.
Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira