Íslenski boltinn

Gunnlaugur tekinn við Selfossi

Elvar Geir Magnússon skrifar
Gunnlaugur Jónsson er orðinn þjálfari Selfyssinga.
Gunnlaugur Jónsson er orðinn þjálfari Selfyssinga.

Gunnlaugur Jónsson skrifaði í kvöld undir samning við Selfoss um að taka við þjálfun liðsins. Gunnlaugur mun einnig spila með Selfyssingum sem leika í 1. deildinni.

Gunnlaugur hefur undanfarin ár leikið með KR en þar á undan gerði hann garðinn frægan hjá ÍA. Hann tekur við Selfyssingum af Zoran Miljkovic sem stýrði Selfossi til þriðja sætis í 1. deildinni í sumar en Stjarnan var aðeins stigi á undan og komst í Landsbankadeildina.

Ómar Valdimarsson verður aðstoðarmaður Gunnlaugs en Ómar var einnig aðstoðarmaður Miljkovic.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×