Fótbolti

Lazio sló Milan út úr bikarnum

Goran Pandev
Goran Pandev AFP

Einn leikur var á dagskrá í ítalska bikarnum í knattspyrnu í kvöld. Goran Pandev var hetja Lazio þegar hann skoraði sigurmark liðsins í framlengingu í 2-1 sigri á AC Milan.

Andriy Shevchenko kom Milan yfir með glæsilegu marki á 77. mínútu en ellefu mínútum áður hafði miðjumanninum Emerson hjá Milan verið vikið af velli með tvö gul spjöld.

Mauro Zarate jafnaði fyrir Lazio tveimur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma þegar hann skoraði úr vítaspyrnu eftir að Giuseppe Favalli braut á Pandev. Makedóníumaðurinn skoraði svo sigurmarkið þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik framlengingar.

Sigurinn tryggði Lazio sæti í fjórðungsúrslitum bikarkeppninnar og mætir það annað hvort Fiorentina eða Torino í janúar eða febrúar.

Leikirnir í 16-liða úrslitunum fara fram yfir þriggja mánaða skeið vegna anna liðanna sem eftir eru í keppninni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×