Fótbolti

Annar sigur Reggina í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emil Hallfreðsson í leik með Reggina.
Emil Hallfreðsson í leik með Reggina. Nordic Photos / AFP
Reggina vann í dag sinn annan sigur í röð í ítölsku úrvalsdeildinni er liðið vann 3-1 sigur á Atalanta á heimavelli.

Emil Hallfreðsson var á varamannabekk Reggina og kom ekkert við sögu.

Reggina er þó enn í fallsæti en er nú með ellefu stig, fimm stigum meira en botnlið Chievo.

Úrslitin í dag:

Bologna - Palermo 1-1

Chievo - Siena 0-2

Lazio - Genoa 1-1

Lecce - Roma 0-3

Napoli - Cagliari 2-2

Reggina - Atalanta 3-1

Sampdoria - Catania 3-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×