Fótbolti

Eiður Smári í hópi Börsunga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leik með Barcelona gegn Espanyol í desember síðastliðnum.
Eiður Smári í leik með Barcelona gegn Espanyol í desember síðastliðnum. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem mætir grannliði sínu í Espanyol í Barcelona í kvöld.

Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona í síðasta leik er liðið gerði 2-2 jafntefli við Recreativo. En fjórir leikmenn sem voru ekki í hópnum í þeim leik eru komnir aftur nú - þeir Deco, Thierry Henry, Andrés Iniesta og Bojan Krkic.

Lilian Thuram, Santi Ezquerro og Edmilson eru ekki í hópnum að þessu sinni né heldur varaliðsmaðurinn Victor Vazquez sem kom inn í hópinn um síðustu helgi.

Deco hefur ekki spilað mað Barcelona síðan um miðjan febrúar en Henry, Iniesta og Krkic áttu allir við smávægileg meiðsli að stríða.

Þeir leikmenn Barcelona sem eru enn meirri eru þeir Albert Jorquera, Olegure Presas og Ronaldinho.

Hópurinn: Valdés, Pinto, Abidal, Sylvinho, Zambrotta, Puyol, Milito, Márquez, Touré Yaya, Xavi, Deco, Iniesta, Eiður Smári, Messi, Eto'o, Henry, Bojan og Giovani.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×