Körfubolti

Tap fyrir Írum

Helena Sverrisdóttir fyllti út tölfræðiskýrsluna að vanda
Helena Sverrisdóttir fyllti út tölfræðiskýrsluna að vanda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði 68-59 fyrir því írska í fjórða leik sínum í B-deild Evrópukeppninnar í Dublin í dag. Íslenska liðið var yfir lengst af leiks, en skoraði aðeins 11 stig síðustu 16 mínútur leiksins og mátti sætta sig við tap.

Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 15 stig fyrir íslenska liðið og Helena Sverrisdóttir skoraði 12 stig, hirti 13 fráköst, gaf 8 stoðsendingar og stal 5 boltum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×