Körfubolti

BUGL nýtur góðs af Meistarakeppni KKÍ

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Snæfellingar leika gegn Keflavík í karlaflokki.
Snæfellingar leika gegn Keflavík í karlaflokki. Mynd/Víkurfréttir/Jón Björn

Árleg Meistarakeppni KKÍ verður haldin um næstu helgi og eins og undanfarin ár verður allur ágóði af leikjunum látinn renna til góðgerðarmála.

Þessi háttur hefur verið hafður á síðan 1995 en í ár nýtur BUGL, Barna og unlgingageðdeild Landspítalans, góðs af átakinu.

Leikirnir fara fram í Toyota-höllinni í Keflavík á sunnudaginn. Í kvennaflokki mætast Keflavík og Grindavík en Keflavík og Snæfell í karlaflokki.

Miðaverð fyrir sextán ára og eldri er 1000 krónur en 500 krónur fyrir 6-15 ára. Börn fimm ára og yngri fá frían aðgang.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×