Fótbolti

Valur í úrslit bikarsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Katrín Jónsdóttir skoraði fyrsta mark Vals Hér er hún til hægri í leiknum í kvöld.
Katrín Jónsdóttir skoraði fyrsta mark Vals Hér er hún til hægri í leiknum í kvöld.

Valur vann í kvöld 5-1 sigur á Stjörnunni á útivelli í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu.

Jafnræði var með liðunum framan af en fyrsta markið kom ekki fyrr en að Katrín Jónsdóttir skoraði fyrir Val á 62. mínútu. Katrín skoraði með skalla eftir sendingu frá Hallberu Guðnýju Gísladóttur.

Margrét Lára Viðarsdóttir bætti við öðru marki aðeins þrjátíu sekúndum síðar, einnig með skalla en eftir sendingu Sophia Mundy.

Pamela Liddell minnkaði svo muninn fyrir Stjörnuna á 81. mínútu en þremur mínútum síðar skoraði Dóra María Lárusdóttir þriðja markið fyrir Val eftir glæsilegan einleik.

Varamaðurinn Kristín Ýr Bjarnadóttir bætti svo við síðustu tveimur mörkum leiksins undir lokin og tryggði þar með Val öruggan sigur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×