Körfubolti

Þetta er undir okkur sjálfum komiið

ÍR hefur verið á bullandi siglingu í úrslitakeppninni
ÍR hefur verið á bullandi siglingu í úrslitakeppninni Mynd/Daniel

Sveinbjörn Claessen átti skínandi leik á miðvikudagskvöldið þegar ÍR komst í 2-0 í einvíginu við Keflavík. Hann á von á erfiðu verkefni gegn Keflvíkingum suður með sjó í kvöld þar sem ÍR getur tryggt sér sæti í úrslitum Iceland Express deildarinnar.

Sveinbjörn var stigahæstur hjá ÍR í öðrum leiknum í Seljaskóla og skoraði 19 stig og misnotaði aðeins eitt skot. Hann var ekki eini ÍR-ingurinn sem spilaði vel það kvöldið, enda hefur spútnikliðið úr Breiðholti líklega komið öllum nema sjálfu sér á óvart í úrslitakeppninni.

En hvernig tilhugsun skyldi það vera fyrir ÍR að þurfa að fara til Keflavíkur í kvöld með það fyrir augum að slá særða heimamenn úr leik 3-0? Vísir hafði samband við Sveinbjörn og spurði hann út í leik kvöldsins.

"Það er búið að vera ofboðslega gaman af þessu og allir þekkja sitt hlutverk í ÍR liðinu. Það er allt að ganga upp hjá okkur núna og við erum að toppa á réttum tíma. Jón þjálfari hefur verið að predika yfir okkur að reyna fyrst og fremst að hafa gaman af þessu og ég held að þar kannski megi finna muninn á liðunum í þessu einvígi. Ég get auðvitað ekki talað fyrir Keflvíkinga, en við höfum allir ofboðslega gaman af þessu og við stefnum enn lengra, því annars væri maður ekki í þessu," sagði Sveinbjörn.

Margir vilja meina að lið Keflavíkur hafi ekki verið að leika vel í einvíginu og að ÍR sé á sama tíma að spila yfir getu og koma á óvart. Sveinbjörn er ekki alveg sammála þessu.

"Við erum kannski að koma öllum á óvart, en þetta kemur okkur í liðinu ekkert sérstaklega á óvart. Við byrjuðum tímabilið illa og vorum í basli með meiðsli og leikmenn og nú erum við bara að koma upp á réttum tíma. Við eigum meira inni og getum farið alla leið, en það er alveg undir okkur sjálfum komið. Ef við mætum til leiks í kvöld eins og við höfum gert, erum við í fínum málum."

"Ég hef lesið um það á netinu og á spjallsíðum að það séu vandamál í liði Keflavíkur og að mórallinn sé ekki nógu góður hjá þeim, en við skulum ekki gleyma því að enginn spilar betur en andstæðingurinn leyfir. Það á það til að gleymast. Við höfum verið að spila fína vörn í báðum leikjunum og erum að halda aftur af þessu sterka sóknarliði, svo þetta er allt í okkar höndum," sagði Sveinbjörn.

Þriðji leikur liðanna verður í Keflavík í kvöld og hefst klukkan 19:15. Hann verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×