Körfubolti

Langskotin verða að detta

Jakob Sigurðarsson og félagar verða að hitta vel úr langskotunum í kvöld að mati Benedikts
Jakob Sigurðarsson og félagar verða að hitta vel úr langskotunum í kvöld að mati Benedikts

Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, segir íslenska landsliðið hafa alla möguleika til að standa í Svartfellingum í kvöld þegar liðin mætast í Evrópukeppninni í körfubolta.

"Þessi þjóð á rosalega marga afburðakörfuboltamenn en maður veit reyndar ekki á hvaða styrk þetta lið er farið að spila enn sem komið er. Ég er nokkuð viss um að þetta lið verður griðarlega erfitt heim að sækja, en það er engin ástæða til að bera of mikla virðingu fyrir þeim hérna á heimavelli. Við eigum alveg að geta strítt þeim, sérstaklega ef þeir koma hingað með einhvern hroka. Við höfum oft spilað mjög vel hérna heima gegn stórþjóðum," sagði Benedikt.

En hverjir eru möguleikar íslenska liðsins gegn sterkum gestunum?

"Ég á von á því að sjá íslenska liðið prófa að spila nokkur afbrigði af svæðisvörn á móti þeim og í sókninni veltur þetta mikið á því hvort langskotin eru að detta hjá okkur eða ekki. Á móti Dönunum vorum við að ná forskoti þegar langskotin voru að detta hjá okkur en hleyptum þeim svo inn í leikinn inn á milli. Það verður allt að detta hjá okkur ef við eigum að vinna þetta lið, því við erum ekkert að fara að æða inn í teig hjá þeim og leggja boltan ofan í á móti manni upp á 230 cm."

Benedikt vill að sjálfssögðu fá fulla Laugardalshöll í kvöld til að styðja við bakið á íslenska liðinu og í pistli sínum á karfan.is lofaði hann að taka að sér að syngja þjóðsönginn fyrir næsta heimaleik ef Höllin yrði full í kvöld.

"Ég lofaði þessu nú af því ég á ekki von á að húsið fyllist alveg í kvöld af því það er svo mikið í gangi, en ég hef þá eitt ár til að æfa mig ef ég þarf að standa við þetta," sagði Benedikt léttur í bragði. "Ég lofa nú aldrei svona nema ég sé nokkuð öruggur með að þurfa ekki að standa við það."

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:15










Fleiri fréttir

Sjá meira


×