Fótbolti

Ronaldinho á leið til AC Milan

Nordic Photos / Getty Images

Brasilíumaðurinn Ronaldinho hefur samþykkt að ganga í raðir AC Milan á næstu leiktíð. Þetta segir bróðir hans og umboðsmaður Roberto de Assis. Ekki er búið að ganga formlega frá samningum, en munnlegt samkomulag mun liggja fyrir.

"Ronaldinho og Milan hafa komist að samkomulagi. Hann var mjög ánægður með áleitanir Milan, enda er það líka frábært lið," sagði bróðurinn.

"Við erum búnir að ná samkomulagi við leikmanninn, nú eigum við bara eftir að ná samningum við Barcelona," sagði Adriano Galliani, yfirmaður Milan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×