Bíó og sjónvarp

Höfundur í feluhlutverki

Jeff Lindsay Leikur í nýjasta Dexter-þættinum sem verður sýndur á sunnudaginn í Bandaríkjunum.
Jeff Lindsay Leikur í nýjasta Dexter-þættinum sem verður sýndur á sunnudaginn í Bandaríkjunum.

Jeff Lindsey, höfundur bókanna um Dexter, er afar hrifinn af sjónvarpsþáttunum sem eru byggðir á verkum hans. Til að sýna stuðning sinn í verki ákvað hann að koma fram í feluhlutverki í nýjasta þættinum sem verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn.

„Þetta er Hollywood. Allir vita að Hollywood nær í frábærar hugmyndir og eyðileggur þær," sagði Lindsey spurður hvort fólk hafi efast um stuðning hans. Bætti hann því við að framleiðendur þáttarins vissu nákvæmlega hvað þeir væru að gera. Í þættinum á sunnudag leikur Lindsay lögregluþjón.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×