Keflavík og Grindavík í undanúrslit 12. janúar 2008 17:55 TaKesha Watson og félagar í Keflavík hefndu ófaranna gegn Val. Mynd/E. Stefán
Fjórðungsúrslit Lýsingabikarkeppni kvenna hófust í dag með tveimur leikjum. Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í undanúrslitum. Grindavík vann KR á heimavelli með þrettán stiga mun, 93-80. Þá vann Keflavík góðan sigur á Val, 71-61. Þessi lið mættust í deildinni á dögunum og þá vann Valur óvæntan sigur. En Keflvíkingar ætluðu ekki að láta það henda aftur og byrjuðu leikinn með því að ná þrettán stiga forystu, 17-4. Valsmenn svöruðu um hæl með því að skora næstu ellefu stigin í leiknum og var staðan að loknum fyrsta leikhluta 17-15. Staðan í hálfleik var 37-31 og svo fór að Keflvíkingar unnu á tíu stiga sigur, 71-61. Signý Hermannsdóttir var stigahæst hjá Val með nítján stig en hún tók þar að auki þrettán fráköst og varði sex skot. Molly Peterman var með sautján stig. Hjá Keflavík var TaKesha Watson með 24 stig en hún stal sjö boltum og gaf sex stoðsendingar. Margrét Kara Sturludóttir kom næst með fjórtán stig, sextán fráköst og sex varin skot. Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði fjórtán stig. Fjórðungsúrslitunum lýkur á morgun með leikjum Hauka og Hamars annars vegar og Snæfells og Fjölnis hins vegar.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira