Íslenski boltinn

Bjarni fyrirliði í kvöld

Elvar Geir Magnússon skrifar
Bjarni Guðjónsson er fyrirliði.
Bjarni Guðjónsson er fyrirliði.

Sjö breytingar hafa verið gerðar á byrjunarliði íslenska landsliðsins sem mætir Möltu í kvöld. Leikurinn er liður í æfingamóti sem stendur yfir á Möltu en sjö leikmenn sem byrjuðu í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi um helgina eru í ekki í byrjunarliði kvöldsins.

Aron Einar Gunnarsson, Theodór Elmar Bjarnason og Bjarni Þór Viðarsson eru þar á meðal en þeir eru farnir yfir í U21 landsliðið sem leikur gegn Kýpur á miðvikudag.

Leikur Möltu og Íslands hefst 18:45. Bæði liðin töpuðu sínum leikjum í fyrstu umferð, Íslendingar fyrir Hvít Rússum og Malta fyrir Armeníu. Ísland og Malta hafa mæst tólf sinnum í A landsleik karla og hafa Íslendingar þar yfirhöndina.  Ísland hefur farið níu sinnum með sigur af hólmi.

Bjarni Guðjónsson, leikmaður ÍA, verður með fyrirliðabandið í kvöld en hér að neðan má sjá byrjunarliðið:

Byrjunarliðið (4-5-1):

Markvörður: Fjalar Þorgeirsson

Hægri bakvörður:  Birkir Már Sævarsson

Vinstri bakvörður:  Hjálmar Jónsson

Miðverðir:  Atli Sveinn Þórarinsson og Ragnar Sigurðsson

Tengiliðir:  Bjarni Guðjónsson fyrirliði, Davíð Þór Viðarsson og Pálmi Rafn Pálmason

Hægri kantur: Baldur Aðalsteinsson

Vinstri kantur:  Eyjólfur Héðinsson

Framherji:  Gunnar Heiðar Þorvaldsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×