Íslenski boltinn

Ísland - Aserbaídsjan í ágúst

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. Mynd/Vilhelm

Knattspyrnusamband Íslands og Knattspyrnusamband Aserbaídsjan hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik. Leikurinn fer fram 20. ágúst og verður leikinn á Laugardalsvelli.

Ísland og Aserbaídsjan hafa ekki leikið áður hjá A-landsliðum karla en Azerar voru í 116. sæti á síðasta styrkleikalista FIFA. Þessi vináttulandsleikur er liður í undirbúningi þjóðanna fyrir undankeppni HM 2010 en Aserar eru þar í riðli með Rússum, Þjóðverjum, Finnum, Walesverjum og Liechtenstein. Íslendingar leika hinsvegar í riðli með Hollandi, Skotlandi, Noregi og Makedóníu.

Af vefsíðu KSÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×