Körfubolti

Roland farinn frá Stjörnunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Calvin Roland hefur leikið sinn síðasta leik með Stjörnunni.
Calvin Roland hefur leikið sinn síðasta leik með Stjörnunni. Mynd/Vilhelm

Stjörnumenn hafa leyst Bandaríkjamanninn Calvin Roland undan samningi og fengið landa hans Jarrett R. Stephens í hans stað.

Roland lék í átta leiki með Stjörnunni og skoraði í þeim 13,3 stig að meðaltali. Hann lék einnig einn bikarleik.

Stephens er 31 árs og getur bæði spilað sem framherji og miðherji. Hann hefur verið samningslaus síðan í desember en spilað síðast í Frakklandi og Argentínu.

Eftir því sem kemur fram á heimasíðu Stjörnunnar er verið að vinna í því að fá leikheimild fyrir hann en Stjarnan mætir Njarðvík í kvöld. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×