Handbolti

Fram tapaði fyrri leiknum í Rúmeníu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jóhann Gunnar Einarsson.
Jóhann Gunnar Einarsson.

Framarar töpuðu í morgun fyrir rúmenska liðinu CSU Poli 24-26 en þetta var fyrri leikur þessara liða í Áskorendakeppni Evrópu. Báðir leikirnir fara fram í Rúmeníu en leikurinn í morgun var skráður heimaleikur Fram.

Fram var tveimur mörkum yfir í hálfleik 15-13. Á lokasprettinum voru það Rúmenar sem voru sterkari og unnu á endanum tveggja marka sigur.

Síðari leikur þessara liða fer fram á morgun.

Markaskorar Fram (skv. handbolti.is) voru:

Hjörtur Hinriksson 5, Halldór Jóhann Sigfússon 4, Stefán Baldvin Stefánsson 4, Andri Berg Haraldsson 3, Jóhann Gunnar Einarsson 2, Jón Björgvin Pétursson 2, Haraldur Þorvarðarson 1, Einar Ingi Hrafnsson 1, Rúnar Kárason 1 og Björn Guðmundsson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×