Handbolti

Dómarinn í deildarbikarsmálinu sagði af sér

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Framarar fagna deildarbikarsmeistaratitlinum umdeilda.
Framarar fagna deildarbikarsmeistaratitlinum umdeilda. Mynd/Arnþór

Deildarbikarsmálið svokallaða er orðin að sögunni endalausu en settur dómari í málinu þurfti að segja sig frá því vegna tengsla við Fram.

Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, staðfesti þetta í samtali við Vísi og sagði að dómarinn, Jóhannes Albert Sævarsson, hafi gert þetta af eigin frumkvæði. Hann býst við því að nýr dómari verður settur í málið í dag.

Málið snýst um að ritari úrslitaleiks Fram og Hauka í deildarbikarkeppninni skráði eitt aukamark á Fram í fyrri hálfleik. Fram vann leikinn með tveggja marka mun en síðasta markið kom í blálokin þegar Haukar voru svo gott sem hættir að verjast.

Haukar kærðu úrslit leiksins en þeirri kæru var vísað frá vegna formgalla. Haukar kærðu á nýjan leik og átti úrskurður að liggja fyrir í upphafi vikunnar. Nú verður einhver bið í þessu máli enn á ný.

Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður dómstóls HSÍ, sagði við Vísi fyrir tíu dögum síðan að þegar hafi verið reynt að leita sátta hjá málsaðilum en það hafi ekki tekist.


Tengdar fréttir

Óvíst hvort Fram haldi deildarbikartitlinum

Nú hefur komið í ljós að sennilega hafa starfsmenn á úrslitaleik Fram og Hauka í deildarbikarkeppni karla í handbolta skráð vitlausan fjölda marka fyrrnefnda liðsins í fyrri hálfleik.

Aron: Munum kæra ef rétt reynist

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, sagði í samtali við Vísi að þeir munu kæra leikinn við Fram í ljós ef í ljós kemur að mark Fram var tvískráð í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×