Íslenski boltinn

Valsmenn kæra úrslit leiksins gegn KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Vals og KR síðastliðið sumar.
Úr leik Vals og KR síðastliðið sumar. Mynd/Daníel
Valur hefur kært úrslit leiksins gegn KR í Reykjavíkurmótinu sem síðarnefnda liðið vann, 4-0.

Þetta staðfesti Ótthar Edvardsson í samtali við Fótbolta.net í dag.

KR tefldi fram Guðmundi Péturssyni í leiknum en hann var ekki skráður á leikskýrslu. Guðmundur kom inn á sem varamaður í leiknum og lagði til að mynda upp eitt marka KR.

KR hefur þegar verið dæmt 3-0 tap í tveimur leikjum á mótinu, gegn Leikni og ÍR. Það var vegna þess að Guðmundur Pétursson var ekki búinn að fá félagaskipti sín frá Noregi í gegn og var hann því ólöglegur leikmaður í bæði skiptin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×