Fótbolti

ÍR Reykjavíkurmeistari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Baldvin Jón Hallgrímsson, fyrirliði ÍR, lyftir bikarnum á loft.
Baldvin Jón Hallgrímsson, fyrirliði ÍR, lyftir bikarnum á loft.

ÍR varð í dag Reykjavíkurmeistari karla í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið vann sigur á Fram í úrslitaleik, 1-0.

Það var Jón Hafsteinn Jónsson sem skoraði sigurmark ÍR í uppbótartíma en leikurinn hafði verið jafn og spennandi fram að því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×