Fótbolti

Ísland hafnaði í 7. sæti á Algarve Cup

Mynd/E.Ól

Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér í hádeginu 7. sætið á Algarve Cup mótinu með góðum 3-0 sigri á Finnum. Margrét Lára Viðarsdóttir kom íslenska liðinu á bragðið snemma leiks með sínu 35. marki í 39 landsleikjum.

Rakel Hönnudóttir skoraði annað mark íslenska liðsins skömmu fyrir leikhlé og var þetta fyrsta landsliðsmark hennar í þriðja landsleiknum. Það var svo Guðrúl Sóley Gunnarsdóttir sem skoraði þriðja mark íslenska liðsins og tryggði því 3-0 sigur.

Mótið var styrkleikaskipt þannig að íslenska liðið hafnaði eins ofarlega og hægt var með markatöluna 12-1. Katrín Jónsdóttir varð í dag leikjahæsti leikmaður íslenska liðsins frá upphafi þegar hún toppaði Ásthildi Helgadóttur í sínum 70. landsleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×