Íslenski boltinn

Byrjunarliðið gegn Færeyingum

Helgi Sigurðsson er einn í frammi
Helgi Sigurðsson er einn í frammi

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið sitt  fyrir æfingaleikinn gegn Færeyingum í Kórnum í Kópavogi klukkan 16 í dag.

Liðið er að miklu skipað leikmönnum frá Íslandsmeisturum Vals, en sex Valsarar eru í byrjunarliðinu.

Byrjunarliðið(4-5-1):

Markvörður:

Kjartan Sturluson (Val)

Varnarmenn:

Birkir Már Sævarsson (Val), Bjarni Ólafur Eiríksson (Val), Atli Sveinn Þórarinsson, fyrirliði (Val), Heimir Einarsson (ÍA).

Miðjumenn:

Jónas Guðni Sævarsson (KR), Aron Einar Gunnarsson (AZ Alkmaar), Davíð Þór Viðarsson (FH), Baldur Aðalsteinsson (Val), Tryggvi Guðmundsson (FH).

Framherji:

Helgi Sigurðsson (Val).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×