Íslenski boltinn

Ísland hefur yfir í hálfleik

Jónas Guðni skoraði fyrir íslenska liðið
Jónas Guðni skoraði fyrir íslenska liðið Mynd/AntonBrink

Íslenska landsliðið hefur 1-0 forystu gegn Færeyingum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í vináttuleik þjóðanna í Kórnum í Kópavogi. Það var Jónas Guðni Sævarsson sem kom íslenska liðinu yfir með skalla rétt áður en flautað var til hálfleiks.

Jafnræði hefur verið með liðunum í fyrri hálfleiknum en það voru reyndar gestirnir sem höfðu fengið besta færi leiksins áður en markið leit dagsins ljós, en Kjartan Sturluson varði vel frá Arnbirni Hansen.

Mark íslenska liðsins kom eftir mjög fallega sókn þar sem Baldur Aðalsteinsson fékk sendingu út á hægri kantinn og gaf fyrir þar sem Jónas stakk sér inn á milli varnarmanna og skallaði í netið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×