Fótbolti

Ronaldinho þarf bara að fá knús

NordcPhotos/GettyImages

Silvinho, leikmaður Barcelona, segir að landi hans Ronaldinho þurfi aðhlynningu frá félögum sínum í liðinu svo hann nái sér aftur á strik eftir fremur dauft ár.

"Ronnie þarf stuðning okkar og umhyggju. Hann þarf að finna að við styðjum við bakið á honum og fá knús frá okkur. Við verðum að fá hann í sitt besta form sem fyrst því liðið þarf á honum að halda," sagði Silvinho.

Ronaldinho hefur aðeins verið í byrjunarliði Barcelona í 13 leikjum af 29 í deildinni í vetur vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×