Fótbolti

Giovani vill ekki fara

Elvar Geir Magnússon skrifar
Givoani sýnir takta á æfingasvæðinu.
Givoani sýnir takta á æfingasvæðinu.

Sóknarmaðurinn Giovani Dos Santos segist aldrei hafa íhugað það að yfirgefa Barcelona. Fréttir á Englandi herma að Manchester City ætli að reyna að fá leikmanninn í sumar.

Chelsea og Liverpool hafa einnig sýnt áhuga á þessum mexíkóska leikmanni sem vill þó vera áfram í herbúðum Börsunga.

„Ég lifi bara í nútíðinni. Ég er hjá Barcelona í dag og vill helst vera hér á næsta tímabili líka og næstu árin ef það er möguleiki," segir Giovani.

Stjórn Barcelona er sögð óánægð með launakröfur leikmannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×