Íslenski boltinn

U17 landslið kvenna tapaði

Elvar Geir Magnússon skrifar
Byrjunarliðið gegn Rússlandi. Mynd af heimasíðu KSÍ.
Byrjunarliðið gegn Rússlandi. Mynd af heimasíðu KSÍ.

Íslenska U17 kvennalandsliðið hefur tapað báðum leikjum sínum í undanriðli fyrir Evrópukeppnina.

Riðillinn er leikinn á Jótlandi en í dag tapaði liðið fyrir Dönum 2-4.

Fyrr í þessari viku töpuðu íslensku stelpurnar 3-4 fyrir Rússum. Íslenska liðið mætir Finnlandi í sínum síðasta leik á laugardag en finnska liðið vann það rússneska 1-0. Danir og Finnar eru á toppi riðilsins með fjögur stig hvort lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×