Fótbolti

Real bætir í forskotið

Raul skoraði annað mark Real í kvöld
Raul skoraði annað mark Real í kvöld NordcPhotos/GettyImages

Real Madrid vann í kvöld góðan 3-1 sigur á Sevilla í leik helgarinnar á Spáni. Meistarar Real eru fyrir vikið komnir með sex stiga forskot á toppnum.

Gabriel Heinze kom Real á bragðið í kvöld eftir aðeins sjö mínútna leik en Freddie Kanoutte jafnaði á 38. mínútu fyrir Sevilla. Aðeins mínútu síðar var Raul búinn að koma heimamönnum aftur yfir og það var svo Higuain sem innsiglaði sigur Real með marki í síðari hálfleik.

Real hefur hlotið 65 stig á toppnum, Villarreal hefur 59 stig í öðru sæti og Barcelona er í því þriðja með 58 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×