Fótbolti

Real Madrid í fjárhagserfiðleikum?

NordcPhotos/GettyImages

Spænskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Real Madrid, ríkasta félagslið heims, ætti við fjárhagserfiðleika að etja. El Mundo Deportivo hélt því þannig fram að félagið hefði tekið 3,5 milljarða króna lán til að standa straum af daglegum rekstrarkostnaði.

Í febrúar gaf Deloitte út skýrslu yfir ríkustu félagslið heimsins og þar var Real Madrid á toppnum. Forráðamenn Real vildu ekki tjá sig um þessar fréttir þegar Katalóníumiðillinn leitaði viðbragða þess.

Því hefur verið haldið fram að fjárhagurinn hjá Real hafi eitthvað sigið niður á við og bendir þar á rök eins og dýra uppsögn Fabio Capello, tekjutap af brotthvarfi David Beckham og mikil og dýr leikmannakaup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×