Íslenski boltinn

Guðni Bergsson í 10 bestu í kvöld

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Myndasafn KSÍ
Mynd/Myndasafn KSÍ

Í kvöld verður Guðni Bergsson til umfjöllunar í þættinum 10 bestu á Stöð 2 Sport 2. Guðni er annar leikmaðurinn sem kynntur er til sögunnar í þessari þáttaröð um tíu bestu knattspyrnumenn Íslands en í síðustu viku var fjallað um Pétur Pétursson.

Þátturinn í kvöld hefst klukkan 21:00 á Stöð 2 Sport 2.

Guðni Bergsson

Valsari í húð og hár en hann hóf ferilinn þar árið 1983 og varð Íslandsmeistari með liðinu í tvígang, árin 1985 og 1987, áður en hann gekk til liðs við Tottenham í upphafi árs 1989. Þar fór hann beint í aðalliðið og lék alls 71 leik á þeim fjórum árum sem hann var hjá félaginu.

Hann gerði stutt stopp hjá Val sumarið 1994 en gekk svo til liðs við Bolton um haustið þar sem hann lék í níu ár, lék 270 leiki og skoraði 23 mörk. Enn í dag er hann talinn einn allra besti leikmaður sem hefur leikið með Bolton frá stofnun félagsins. Hann var á sínum tíma leikjahæsti leikmaður landsliðsins þrátt fyrir fimm ára fjarveru. Hann var landsliðsfyrirliði í 30 leikjum.

Landsleikir: 80/1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×