Fótbolti

Beckham: Mig langaði að spila gegn Udinese

AFP

David Beckham var í stúkunni í gær þegar AC Milan burstaði Udinese 5-1 í ítölsku A-deildinni og var mjög hrifinn af leik liðsins.

Beckham horfði á leikinn með konu sinni en hann mun ganga í raðir Milan í janúar sem lánsmaður frá LA Galaxy, en þá mun hann fara með liðinu í keppnisferðalag til Dubai.

"Ég hefði verið til í að spila þennan leik því það er ómögulegt annað en að hafa gaman af því að spila með svona stórkostlegu liði," sagði Beckham í samtali við fjölmiðla.

"Það var gaman að hitta börnin sem gáfu mér nýju Milan treyjuna mína og heyra viðbrögð stuðningsmanna. Ég spilaði með Manchester United og Real Madrid og pressan er sú sama hjá Milan," sagði Englendingurinn brosmildi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×