Fótbolti

Spilar Amauri fyrir Ítalíu?

Elvar Geir Magnússon skrifar
Amauri lék áður með Palermo.
Amauri lék áður með Palermo.

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Amauri, sóknarmaður Juventus, gæti valið að leika fyrir landslið Ítalíu. Amauri verður ítalskur ríkisborgari um áramótin en hann er giftur ítalskri konu.

Aumauri er fæddur í Brasilíu en samkvæmt Tuttosport er Marcello Lippi, þjálfari Ítalíu, að íhuga að kalla hann upp í landsliðshóp sinn á nýju ári. Athyglisvert er að Ítalía mætir einmitt Brasilíu í vináttulandsleik þann 10. febrúar næstkomandi.

Sögur segja að Carlos Dunga, þjálfari brasilíska landsliðsins, sé einnig að spá í að velja Amauri sem enn hefur ekkert gefið upp um það hvað hann hyggst gera en gefið vísbendingar um að hann spili fyrir þá þjóð sem velji hann fyrst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×