Íslenski boltinn

Öruggur sigur á Serbum

Margrét Lára skoraði tvö mörk
Margrét Lára skoraði tvö mörk

Íslenska kvennalandsliðið vann í dag öruggan 4-0 sigur á Serbum ytra í undankeppni EM. Staðan í hálfleik var 1-0 íslenska liðinu í vil. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk í leiknum og þær Katrín Ómarsdóttir og Sara Gunnarsdóttir sitt markið hvor.

Íslenska liðið leikur næst við Slóvena og Grikki á heimavelli í lok júní og á enn möguleika á að tryggja sér sæti á EM í Finnlandi á næsta ári.

Vinni íslenska liðið sigur á Slóvenum og Grikkjum, nægir því jafntefli í lokaleiknum við Frakka til að tryggja sér sæti í umspili. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×