Íslenski boltinn

Tómas Ingi tekinn við HK - semur til þriggja ára

Ómar Þorgeirsson skrifar
Tómas Ingi Tómasson ásamt Eyjólfi Sverrissyni fyrir leik hjá 21 árs landsliðinu.
Tómas Ingi Tómasson ásamt Eyjólfi Sverrissyni fyrir leik hjá 21 árs landsliðinu. Mynd/Pjetur

„Ég er búinn að nota síðustu ár til þess að fylgjast vel með boltanum hér á Íslandi og ná mér í tiltekin réttindi til þess að þjálfa. Það er svona vika síðan þetta kom fyrst upp með HK og þetta gekk því tiltölulega fljótt og vel fyrir sig.

Ég ætlaði að skoða hvað myndi koma inn á borð til mín og það voru nokkrir aðilar sem settu sig í samband við mig en HK-ingar unnu þetta það hratt og vel að þeir voru í lang fyrsta sæti," segir Tómas Ingi Tómasson, nýráðinn þjálfari 1. deildarliðs HK, í samtali við Vísi. Tómas Ingi skrifar undir þriggja ára samning við HK og hlakkar eðlilega mjög til verkefnisins.

„Öll aðstaða og umgjörð hjá HK er til fyrirmyndar og líklega sú besta á Íslandi og á endanum var þetta því engin spurning fyrir mig að taka starfið að mér. Leikmannahópurinn er líka sterkur og mikið af efnilegum leikmönnum og við ætlum því að vera í toppbaráttunni í 1. deildinni næsta sumar," segir Tómas Ingi sem hefur fullan hug á því að halda áfram sem aðstoðarþjálfari U-21 árs landsliðsins.

Þá sér Tómas Ingi jafnframt fram á að vera áfram á sínum stað sem sparkspekingur í hinum vinsæla Pepsimarkaþætti á Stöð 2 Sport.

„Ég á eftir að ræða málin við KSÍ en vona að við komumst að samkomulagi með það að ég haldi áfram mínu starfi þar. Hvað varðar sjónvarpið að þá er það komið í smá pásu núna en við sjáum til hvað gerist.

Ég hef annars sagt að þó að maður getur rifið kjaft í sjónvarpi að þá er ekki þar með sagt að maður sé alvitur og ég á eflaust eftir að gera mistök í þessu starfi eins og aðrir. Ef þú rífur kjaft og gagnrýnir þá verður þú að þola gagnrýni líka og ég er klárlega með breiðara bak en flestir í þessu," segir Tómas Ingi á léttum nótum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×