Íslenski boltinn

Hermann missir af næsta landsleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. Mynd/Stefán

Hermann Hreiðarsson missir af vináttulandsleik Íslands og Lúxemborgar sem fer fram síðar í mánuðinum þar sem hann á enn við meiðsli að stríða.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Hermann hefur verið frá vegna meiðsla undanfarna mánuði en hann reif sin í il á æfingu íslenska landslðiðsins fyrir leikinn gegn Noregi í upphafi september.

Hermann var þá nýbúinn að jafna sig á öðrum meiðlsum og hefur því ekkert geta spilað með Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í haust.

Hann sagði þó að hann stefni að því að byrja að spila á ný eftir að landsleikjafríinu lýkur um miðjan mánuðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×