Fótbolti

Mourinho las leikmönnum pistilinn

NordicPhotos/GettyImages
Leikmenn Inter fengu sannkallaðan hárblástur frá þjálfara sínum Jose Mourinho eftir að liðið steinlá 3-1 fyrir Atalanta á sunnudaginn.

La Repubblica hefur þannig eftir heimildamönnum sínum að reiðilestur þjálfarans hafi heyrst langt út fyrir búningsklefann og að margt af því sem þjálfarinn lét út úr sér hafi ekki verið prenthæft.

"Þið unnuð fyrsta titilinn í réttarsal, annan af því þið fenguð enga samkeppni og þann þriðja unnuð þið með minnsta mögulega mun. Þið eruð allir labbakútar," á Mourinho að hafa þrumað yfir leikmenn sína.

Þetta var annað tap Inter á leiktíðinni, en liðið tapaði 1-0 fyrir Milan í grannaslag fyrir áramótin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×