Fótbolti

Ronaldinho vill ekki fara frá Milan

Nordic Photos/Getty Images

Brasilíumaðurinn Ronaldinho hefur ekki náð sér á strik síðan hann gekk í raðir AC Milan og hefur verið orðaður við nokkur önnur félög að undanförnu.

Leikmaðurinn sjálfur segist þó ekki hafa hug á að fara frá Milan þó hann hafi oft mátt sætta sig við að vera á varamannabekknum hjá Carlo Ancelotti.

"Mér semur vel við félaga mína í liðinu og hef ekki í hyggju að fara frá Milan. Mig langar að vinna titla með Milan og ég var vonsvikinn að við næðum ekki takmörkum okkar í vetur. Ég lofa að við vinnum bæði deildina og Evrópukeppnina á næstu leiktíð," sagði Ronaldinho í samtali við La Gazzetta dello Sport.

Ancelotti hefur líka lýst því yfir að hann sé ánægður með hinn 29 ára gamla Brasilíumann, þó hann hafi aðeins stillt honum 16 sinnum upp í byrjunarlið sitt í A-deildinni. Hann hefur skorað átta mörk í vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×