Körfubolti

Grindvíkingar unnu Powerade-bikarinn eftir öruggan sigur á Njarðvík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þorleifur Ólafsson og Brenton Birmingham lyfta bikarnum.
Þorleifur Ólafsson og Brenton Birmingham lyfta bikarnum. Mynd/Valli
Grindavík vann 17 stiga sigur á Njarðvík, 79-62, í úrslitaleik Powerade-bikars karla í Laugardalshöllinni í dag. Grindavík var með þriggja stiga forskot í hálfleik, 39-36, en Njarðvíkingar áttu fá svör í seinni hálfleiknum sem Grindavík vann 40-26.

Arnani Daanish var með 19 stig og 12 fráköst hjá Grindavík, Þorleifur Ólafsson skoraði 15 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar, Páll Axel Vilbergsson var með 13 stig og Ómar Sævarsson bætti við 10 stigum og 11 fráköstum.

Jóhann Árni Ólafsson var stigahæstur hjá Njarðvík með 14 stig, Magnús Þór Gunnarsson skoraði 13 stig og Kristján Sigurðsson var með 12 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×