Íslenski boltinn

Sigurður Ragnar: Þetta eru bestu leikmenn Íslands í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins. Mynd/Stefán

„Þetta er hátíðlegur hópur og því ætla ég að lesa hann upp," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þegar hann tilkynnti hvaða 22 stelpur fá að fara á fyrsta stórmótið í sögu íslensks A-landsliðs en framundan er Evrópumót landsliða í Finnlandi.

„Við erum búnir að velta þessu vali mikið fyrir okkur enda er um mjög mikilvægan hóp að ræða. Við teljum að þetta séu bestu leikmenn Íslands í dag og við teljum liðið vera mjög vel undirbúið eftir marga undirbúningsleiki á þessu ári," sagði Sigurður Ragnar á blaðamannafundinum.

„Það er einn nýliði í hópnum, Kristín Ýr Bjarnadóttir sem er markahæsti leikmaður Pepsi-deildar kvenna og er að mínu mati einn besti skallamaður landsins. Við misstum Hörpu Þorsteinsdóttur í meiðsli þegar hún fótbrotnaði og Kristín Ýr finnst mér eiga heima í þessum hópi," sagði Sigurður Ragnar sem játti því að valið hafi verið erfitt á milli markmannanna Söndru Sigurðardóttur og Maríu B. Ágústsdóttur.

„Þær hafa báðar staðið sig mjög vel í sumar og eru báðar frábærir markmenn. Þær hafa líka gert sín mistök þannig að valið var gríðarlega erfitt. Markmannsstaðan er kannski sú staða þar sem að við erum best sett í liðinu. Við eigum marga frábæra markmenn en niðurstaðan var þessi að Sandra var valin fram yfir Maríu," sagði Sigurður Ragnar.

Markmið liðsins eru að komast upp úr riðlinum og inn í átta liða úrslitin. "Það væri frábær árangur að komast upp úr þessum mjög svo erfiða riðli sem við erum í með Þýskalandi, Fraklandi og Noregi," sagði Sigurður Ragnar og bætti við:

„Við lítum raunsætt á hlutina og við erum í gríðarlega erfiðum riðli. Við erum með Þýskalandi sem hefur unnið tvær síðustu heimsmeistarakeppnir og fékk ekki á sig mark í þeirri síðustu. Þær hafa unnið síðustu fimm evrópumót og þær eru ekki vanar að misstíga sig á stórkeppni. Það verður mikil áskorun að mæta þeim en við vitum að við eigum góða möguleika á móti bæði Frakklandi og Noregi. Við unnið Noreg nokkuð sannfærandi í síðasta leik. Við höfum síðan bæði unnið og tapað á móti Frökkum í jöfnum leikjum þannig að það getur allt gerst þar," sagði Sigurður Ragnar.

Sigurður Ragnar kallar hópinn saman 12. ágúst en daginn áður fer fram síðasta umferðin í Pepsi-deild kvenna fyrir EM-hléið. Stelpurnar munu þá fara á æfingu og horfa síðan saman á karlalandsleik Íslands og Slóvakíu.

Íslenska landsliðið mætir Serbíu á Laugardalsvellinum 15. ágúst og segir Sigurður Ragnar að lokaundirbúningurinn fyrir lokakeppnina hefjist í raun ekki fyrr en eftir hann.

„Þetta er mótaleikur og mjög mikilvægur leikur því við erum þarna að hefja leik í nýju móti þar sem við ætlum líka að ná árangri. Þessi leikur má alls ekki gleymast og við ætlum ekki að tapa okkur í undirbúningnum fyrir lokakeppnina því þessi leikur er gríðarlega mikilvægur," sagði Sigurður Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×