Handbolti

Björgvin Páll hafði betur í Íslendingaslagnum í Sviss

Ómar Þorgeirsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson. Mynd/Stefán

Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu 25-27 sigur á Amicitia Zurich í svissneska handboltanum í gær en Kári Kristján Kristjánsson leikur með síðarnefnda liðinu.

Kári Kristján skoraði þrjú mörk fyrir Amicitia Zurich í leiknum.

Kadetten Schaffhausen vakti athygli fyrir vaska framgöngu í forkeppni Meistaradeildarinnar á dögunum og er búið að vinna báða leiki sína til þessa í svissnesku deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×