Fótbolti

Ronaldinho hefur fengið tilboð

Nordic Photos/Getty Images

Roberto de Assis, bróðir og umboðsmaður Brasilíumannsins Ronaldinho hjá AC Milan, segir nokkur félög hafa sett sig í samband og lýst yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir í sumar.

Ronaldinho átti ekki sérstakt fyrsta ár með Milan eftir að hafa komið frá Barcelona og hefur mikið þurft að dúsa á varamannabekk liðsins. Bróðir hans segir þó útilokað að hann fari aftur til heimalandsins.

"Það er ekki möguleiki að hann fari frá Evrópu, en ef þið spyrjið mig hvort hann gæti skipt um lið í Evrópu - svara ég játandi," sagði Assis.

Ronaldinho hefur verið orðaður við Manchester City á Englandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×