Fótbolti

Þjálfari Reggina hefur ekki gefist upp

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Emil fagnar hér marki sínu í dag.
Emil fagnar hér marki sínu í dag. Nordic Photos/Getty Images

Jafntefli Reggina gegn Juventus í dag hefur gefið þjálfara liðsins, Nevio Orlandi, aukna von um að liðinu takist að halda sæti sínu í efstu deild á Ítalíu.

Dagurinn spilaðist reyndar ekki vel fyrir Reggina því flest liðin sem þau eru að berjast við unnu sína leiki.

Ef við hefðum unnið leikinn þá hefðum við fengið meiri kraft auk þess að komast í betri stöðu. Við teljum okkur samt geta barist við hvaða lið sem er. Við erum ekki hættir og munum berjast til enda því við eigum enn möguleika," sagði Orlandi.

Reggina á eftir að mæta nokkrum af liðunum í kringum sig í deildinni þannig að ekki er öll von enn úti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×