Fótbolti

Markvörður Lazio vekur áhuga á stórliða á Englandi

Ómar Þorgeirsson skrifar
Fernando Muslera.
Fernando Muslera. Nordic photos/AFP

Samkvæmt heimildum vefmiðilsins Tuttomercatoweb.com eru ensku félögin Manchester United, Manchester City og Arsenal öll áhugasöm á að fá markvörðinn Fernando Muslera í sínar raðir en þessi 23 ára gamli landsliðsmaður Úrúgvæ leikur með Lazio.

Áðurnefnd félög munu öll vera búin að tjá forráðamönnum Lazio um áhuga sinn en stjórnarformaðurinn Claudio Lotito hjá ítalska félaginu vill alls ekki missa Muslera.

Lazio mun því vera með nýtt risasamningstilboð í burðarliðnum fyrir markvörðinn, sem kom til félagsins í ágúst árið 2007 á 3 milljónir evra frá Montevideo Wanderers, til þess að kæla áhuga ensku félaganna áður en félagaskiptaglugginn opnar að nýju í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×